Notandaspjall:Io

Úr Wikiheimild

Fara á: flakk, leita

Efnisyfirlit

[breyta] Bólu-Hjálmar

Víst lestu Göngu-Hrólfs rímur :) Þær eru skemmtilegar. Annars er ég ekki með Bólu-Hjálmar hérna í Lundúnum og man ekki svo glöggt hvaða rímur hans eru skemmtilegastar enda hef ég ekki lesið þær allar. En Göngu-Hrólfur er góður. - Haukur 12. janúar 2006 kl. 21:31 (UTC)

[breyta] Lagfæringar

Ekki vera að biðja mig forláts þegar þú snyrtir til eftir mig, þetta er nú einu sinni wiki :) - Haukur 12. janúar 2006 kl. 21:31 (UTC)

[breyta] Alþingisrímur

Til hamingju með að hafa komið þessu! Þú átt heiður skilinn :) - Haukur 15. janúar 2006 kl. 23:18 (UTC)

Ég tek heils hugar undir þetta með Hauki. Stefán Ingi 16. janúar 2006 kl. 13:44 (UTC)

[breyta] Salve, mi bone fons

Jamm, þetta sést allt hjá mér. Leturgerðin er kannski ekkert til að hrópa húrra fyrir, áferðin á textanum er dálítið ólík latnesku stöfunum. Mac Os X tölvan hérna við hliðina á mér er með fallegra letur. Kveðja, Stefán Ingi 16. janúar 2006 kl. 16:33 (UTC)

[breyta] Rímnaáhugi

Þegar ég var í menntaskóla las ég mikið af rímum. Vinur minn safnaði þeim og ég komst í að lesa mest allt sem hann keypti. Nú man ég ekki svo nákvæmlega hvað ég las og hvað ekki en ég held að ég hafi örugglega lesið allt safn rímnafélagsins og hitt og þetta fleira. Nú hef ég ekkert lesið af þeim lengi en áhuginn er svo sannarlega enn fyrir hendi. Kveðja, Stefán Ingi 16. janúar 2006 kl. 18:19 (UTC)

[breyta] Háttatal enn

Æ, fyrirgefðu hvað ég hef verið lítið til viðtals :)

Ég er enginn lagarefur og veit ekki betur en þú hvaða leyfi Wikisource-verkefni geta sætt sig við. En hugmyndin er að þetta sé safn texta sem hægt er að dreifa víðar svo að sér-leyfi fyrir Wikiheimildina eina mundi a.m.k. varla ganga. En e-s konar "non-commercial" leyfi væri kannski í lagi? Hvað gera menn á öðrum tungumálum? Svo er úrval góðra leyfa á http://www.creativecommons.org Haukur 22. janúar 2006 kl. 01:23 (UTC)