Til herra Páls Gaimard

Úr Wikiheimild
Til herra Páls Gaimard
höfundur Jónas Hallgrímsson

Ort fyrir samsæti Íslendinga í Kaupmannahöfn til heiðurs Paul Gaimard 16. janúar 1839. Kom út í bókinni Ljóðmæli Jónasar Hallgrímssonar 1847.

Joseph Paul Gaimard (1796 - 1858).
Joseph Paul Gaimard (1796 - 1858).
Þú stóðst á tindi Heklu hám
og horfðir yfir landið fríða,
þar sem um grænar grundir líða
skínandi ár að ægi blám.
En Loki bundinn beið í gjótum
bjargstuddum undir jökulrótum. -
Þótti þér ekki Ísland þá
yfirbragðsmikið til að sjá?
Þú reiðst um fagran fjalladal
á fáki vökrum, götu slétta,
þar sem við búann brattra kletta
æðandi fossar eiga tal,
þar sem að una hátt í hlíðum
hjarðir á beit með lagði síðum. -
Þótti þér ekki Ísland þá
íbúum sínum skemmtan ljá?
Þú komst á breiðan brunageim
við bjarta vatnið fiskisæla,
þar sem vér áður áttum hæla
fólkstjórnarþingi, frægu um heim.
Nú er þar þrotin þyrping tjalda,
þögult og dapurt hraunið kalda. -
Þótti þér ekki Ísland þá,
alþingi svipt, með hrellda brá?
Nú heilsar þér á Hafnar slóð
heiman af Fróni vina flokkur.
Við vitum glöggt, að anntu okkur,
frakkneskur maður, frjálsri þjóð,
því andinn lifir æ hinn sami,
þótt afl og þroska nauðir lami.
Menntanna brunni að bergja á
bezta skal okkur hressing ljá!
Vísindin efla alla dáð,
orkuna styrkja, viljann hvessa,
vonina glæða, hugann hressa,
farsældum vefja lýð og láð.
Tífaldar þakkir því ber færa
þeim, sem að guðdómseldinn skæra
vakið og glætt og verndað fá
vizkunnar helga fjalli á.
Þvílíkar færum þakkir vér
þér, sem úr fylgsnum náttúrunnar
gersemar, áður aldrei kunnar,
með óþrjótanda afli ber.
Heill sér þér, Páll, og heiður mestur!
Hjá oss sat aldrei kærri gestur.
Alvaldur greiði æ þinn stig!
Ísland skal lengi muna þig.