Í Hlíðarendakoti
Útlit
Í Hlíðarendakoti
Höfundur: Þorsteinn Erlingsson
Höfundur: Þorsteinn Erlingsson
- Fyrr var oft í koti kátt,
- krakkar léku saman.
- Þar var löngum hlegið hátt,
- hent að mörgu gaman.
- Úti um stéttar urðu þar
- einatt skrýtnar sögur,
- þegar saman safnast var
- sumarkvöldin fögur.
- Eins við brugðum okkur þá
- oft á milli bæja
- til að kankast eitthvað á
- eða til að hlæja.
- Margt eitt kvöld og margan dag
- máttum við í næði
- æfa saman eitthvert lag
- eða syngja kvæði.
- Bænum mínum heima hjá
- Hlíðar brekkum undir
- er svo margt að minnast á,
- margar glaðar stundir.
- Því vill hvarfla hugurinn,
- heillavinir góðir,
- heim í gamla hópinn minn,
- heim á fornar slóðir