Fara í innihald

Blaðsíða:Dægradvöl (1923).pdf/11

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

ÆTT MÍN.

Föðurætt mín er að sunnan, en Jón Pjetursson háyfirdómari, sem er ættfróður mjög, hefur ekki getað rakið hana nema skamt upp eptir. En hún nær sjálfsagt eins langt fyrir það, þó milliliði vanti, og í Landnámu stendur (pag. 320): »Ásbjörn Özurarson, bróðurson Ingólfs, nam land milli Hraunsholtslækjar ok Hvassahrauns, Álptanes allt, ok bjó á Skúlastöðum; hans son var Egill, faðir Özurar, föður Þórarins, föður Ólafs, föður Sveinbjarnar, föður Ásmundar, föður Sveinbjarnar, föður Styrkárs, föður Hafr-Bjarnar, föður þeirra Þorsteins og Gizurar í Seltjarnarnesi«. Hjer eru sömu nöfn, sem hafa enn haldist í föðurætt minni og eru efalaust heitin eptir þessum mönnum: Sveinbjörn, Egill, Ásbjörn, Þorsteinn; — þeir hafa allir verið bændur og merkismenn á sinni tíð, þó ekki hafi farið sögur af þeim.

Móðurætt mín er allt kunnugri og hefur Jón háyfirdómari einnig rakið hana og gefið mjer.