Fara í innihald

Blaðsíða:Dægradvöl (1923).pdf/13

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

ÁLPTANES liggur á milli Hafnarfjarðar og Skerjafjarðar, og er flatt og lítt bunguvaxið sumstaðar; inn í það ganga víkur tvær, önnur að sunnanverðu og heitir Skógtjörn, en hin að norðanverðu og heitir Lambhúsatjörn; þessar víkur skipta nesinu eiginlega í tvo hluti, og er eið allbreitt á milli, þar er Selsgarður eða Selsskarð. Meginhluti Álptaness telst frá Kópavogi og að Hafnarfjarðarkaupstað og er eiginlega Álptanes óeiginlega kallað, því að þó sagt sje »Garðar á Álptanesi«, þá er aldrei sagt »Hafnarfjörður á Álptanesi«. Á meginhlutanum eru margir bæir og fremur sveitalegt og fagurt; Garðahraun er partur af hinum stórkostlegu Reykjanesshraunum og eykur það landsfegurðina eigi lítið, einkum á sumrin, þar sem silfurgrár gamburmosi klæðir hvervetna hraunklettana, sumstaðar eins og stórir flákar, en sumstaðar í dældum og djúpsignum lautum, en í gjótunum vaxa ýms grös og jurtir og verða hávaxnar og sællegar, þar sem þær eru í skjóli fyrir öllum vindum og geta notið sólarinnar í næði: stórar brekkur með fagurgrænum laufaskurði bærast uppi yfir fjólubláu lyfjagrasi og heiðgulum dvergasóleyjum, sumstaðar hallast einstaka jarðarber upp við græna kúluvaxna kodda, alvaxna lyfrauðu lambagrasi, en geldingahnapparnir lúta fram yfir gjótubarmana, þar sem kóngulóin hefur dregið