Fara í innihald

Blaðsíða:Dægradvöl (1923).pdf/24

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

20

mikill fyrir sjer og sterkur, frægur raddmaður og gáfaður, skáld gott og kunni vel að yrkja á latínu, og um þetta var kveðið, — en ekki veit jeg hvort Jón hefur gert það:

Á grandanum heyrist grátur og raus,
grátur og raus, grátur og raus,
á grandanum heyrist grátur og raus,
getið þið hvern jeg meini.
Lector situr sálarlaus,
sálarlaus, sálarlaus
Lector situr sálarlaus,
sunnan undir steini.

Virðar segja vizkulaus,
vizkulaus, vizkulaus,
virðar segja vizkulaus
vestan undir steini.
Aðrir segja ærulaus,
ærulaus, ærulaus,
aðrir segja ærulaus
austan undir steini.
Nokkrir segja náttúrulaus,
náttúrulaus, náttúrulaus,
nokkrir segja náttúrulaus
norðan undir steini.

Sýnir þetta meðal annars, hversu litla virðingu piltar báru fyrir Lector, því þótt hann væri góðmenni, þá var hann ónýtur stjórnari og skaraði ekki fram úr í neinu, og ekki var slíkt ort um hina kennarana.

1826—1835.

Mjer er sagt að jeg hafi fæðst 6. oktober 1826, en jeg man ekkert eptir þeirri fæðingu, og ekkert veit jeg sjálfur um þetta: