Fara í innihald

Blaðsíða:Dægradvöl (1923).pdf/26

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

22

Eyvindarstöðum. Í bláu stofunni var stórt rúm með sparlökum og þar sváfum við hjá foreldrum okkar meðan við vorum lítil; í stofunni hengu tvær stórar olíumyndir, önnur af Finni biskupi, en hin af Brynjólfi biskupi Sveinssyni og man jeg vel eptir þeim; annar var hvítleitur en hinn rauðleitur, og var faðir minn vanur að segja við okkur, þegar við vorum að skoða myndirnar: »Þessi er rauður af brennivíni, en þessi er hvítur af lestri«. Þessar myndir hafa sjálfsagt verið komnar frá Benedikt afa mínum, en jeg veit ekkert um hvað af þeim varð, og er það skaði mikill með Brynjólf, því nú er engin mynd til af honum; en í þá daga var ekkert hirt um slíkt. [Í »Sunnanfara« (1896) er mynd sem á að vera af Brynjólfi, en hún er ekkert lík því sem jeg man eptir. Dr. Jón Þorkelsson (yngri) fjekk þessa mynd hjá frú Katrínu Þorvaldsdóttur, og sýndi mjer hana, og vildi endilega að þetta væri mynd af Brynjólfi, en jeg sagði lítið um það til þess að styggja ekki Jón. Myndin er eins og af einhverjum Idiot; maðurinn les ekki á bókina, en það er eins og hann hlusti eftir hvort hún segi ekki eitthvað. Fremur held jeg þetta sje kopí af mynd Jóns bisk. Vidalíns, því hann er myndaður eins, með bók í hendi sem hann bendir á, en sú mynd er líka illa gerð (af Helga Sigurðssyni). Það sem dr. J. Þ. segir um okkur systkinin og myndina er alt rangfært. Faðir minn hefur víst vitað vel af hverjum myndin var. Jeg teiknaði mynd fyrir Torfhildi Holm, af því hún lagði svo fast að mjer, en jeg vissi vel að hún var ekkert lík því sem vera átti, og jeg var líka illa fyrirkallaður]. Við höfðum hæns á Bessastöðum og man jeg eptir, að einusinni var hani drepinn með því að höfuðið var snögglega höggvið af honum, og flaug hann höfuðlaus nokkurn