Þessi síða hefur verið prófarkalesin
TIL LESANDANS.
Í brekkunum heima, við bjallanna skjól,
Er bernskunnar ljómaði dagur
Og faðminn eg breiddi mót sí-ungri sól,
Þá sýndist mjer heimurinn fagur;
Því æskan og sakleysið átti þar Lund
Með útsprungnar rósir, um vorhlýja stund.
Er bernskunnar ljómaði dagur
Og faðminn eg breiddi mót sí-ungri sól,
Þá sýndist mjer heimurinn fagur;
Því æskan og sakleysið átti þar Lund
Með útsprungnar rósir, um vorhlýja stund.
En brátt skall á hretið, sem hlýindin sleit,
Svo hrundu’ allar skýjanna borgir;
Og fölva þá sló yfir rósanna reit —
Um rústirnar flögruðu sorgir;
Þær auðnir nú skoða’ eg við æskunnar ljós,
Því enn þá jeg vona að spretti þar rós.
Svo hrundu’ allar skýjanna borgir;
Og fölva þá sló yfir rósanna reit —
Um rústirnar flögruðu sorgir;
Þær auðnir nú skoða’ eg við æskunnar ljós,
Því enn þá jeg vona að spretti þar rós.