Þessi síða hefur verið prófarkalesin
SVIPUR.
I.
Hnigin er sólin að sævi,
Svifin er aldan að blómríkri strönd.
Dagsins er útrunnin æfi,
Alsælis-ró fyllir himin og lönd.
Máninn í skýjunum skundar,
Skín, þegar gægjast til jarðar hann má;
Barnið í draumleysi blundar,
Bæn flytur móðirin vöggunni hjá.
Svifin er aldan að blómríkri strönd.
Dagsins er útrunnin æfi,
Alsælis-ró fyllir himin og lönd.
Máninn í skýjunum skundar,
Skín, þegar gægjast til jarðar hann má;
Barnið í draumleysi blundar,
Bæn flytur móðirin vöggunni hjá.
Alt, sem að þreytt er og þjakað,
Þæginda nýtur í rökkursins fró;
Alt, sem að ei getur vakað,
Alsvæfi nærist í bjargtraustri ró.
Ástsæl á afskekktum leiðum
Unnustan spjallar sinn hugljúfa við;
Glóhnappar glúpna á meiðum,
Grið þiggur sekur, en sturlaður frið.
Þæginda nýtur í rökkursins fró;
Alt, sem að ei getur vakað,
Alsvæfi nærist í bjargtraustri ró.
Ástsæl á afskekktum leiðum
Unnustan spjallar sinn hugljúfa við;
Glóhnappar glúpna á meiðum,
Grið þiggur sekur, en sturlaður frið.
—97—
Fölvar Rósir VII.