Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Bráðum er dvínaður dagur,
Drúpa nú þögul hver fífill og rós.
Kvöldbjarmi friðsæll og fagur
Fyllir hvert hjarta, með rósem’ og ljós.
Mikið og margt er að skoða:
Margfaldast stjörnurnar himninum á.
Hvað skyldi blik þeirra boða?
Bros þeirra lyftir mjer jörðinni frá.
Drúpa nú þögul hver fífill og rós.
Kvöldbjarmi friðsæll og fagur
Fyllir hvert hjarta, með rósem’ og ljós.
Mikið og margt er að skoða:
Margfaldast stjörnurnar himninum á.
Hvað skyldi blik þeirra boða?
Bros þeirra lyftir mjer jörðinni frá.
Lífið er atvikum ofið,
Alvizkan þekkir hvað hentugast er.
Frelsið úr fjötrum er rofið:
Jeg finn það er gengið við hliðin’ á mjer!
Er mig þá ekki að dreyma?
Er þetta blærinn að læðast um grund?
Eða eru hjer svipir að sveima —
Sálir að mætast á þessarl stund!
Alvizkan þekkir hvað hentugast er.
Frelsið úr fjötrum er rofið:
Jeg finn það er gengið við hliðin’ á mjer!
Er mig þá ekki að dreyma?
Er þetta blærinn að læðast um grund?
Eða eru hjer svipir að sveima —
Sálir að mætast á þessarl stund!
II.
Er auga mitt vilt?
Er eðli mitt spillt?
Er alt orðið breytt?
Hvort sje jeg til þín!
Er það sjónhverfing mín —
Eða sje jeg ei neitt?
Er eðli mitt spillt?
Er alt orðið breytt?
Hvort sje jeg til þín!
Er það sjónhverfing mín —
Eða sje jeg ei neitt?
—98—