Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Komstu að segja mjer söguna þína —
Eða sá nokkrum blómum á götuna mína?
— Reika hjer með mjer á rökkvuðum slóðum?
— Rjúfa upp neista úr kulnuðum glóðum?
Jeg finn þína nálægð, því enn er jeg ungur
Og andi minn fleygur, en líkaminn þungur
Að stika þinn himin um ómælis ár.
Er úthaf ei stærra og meira en tár?
Samt vissi jeg, Hulda, þú varst ekki dáin —
Jeg var ekk' að star’ útí eilífan bláinn,
Mig dreymdi svo oft að þú elskaðir mig,
Nú veit jeg það — þekki jeg þig.
Við hliðin’ á þjer
Slær hjartað í mjer
Svo hratt — þó svo mjúkt.
Það funar og gýs —
Það fellur og rís —
Jeg finn það er sjúkt;
Samt er jeg glaður og langar að lifa
Því lífi, sem tími og rúm ekki bifa
— Að barmi þjer dauðþreyttu höfðinu halla
— Í hyldjúpa sælunnar arma þjer falla!
Nú fáum við loksins að faðmast og njótast.
Jeg finn hvernig blóðið í æðum þjer rótast,
Slær hjartað í mjer
Svo hratt — þó svo mjúkt.
Það funar og gýs —
Það fellur og rís —
Jeg finn það er sjúkt;
Samt er jeg glaður og langar að lifa
Því lífi, sem tími og rúm ekki bifa
— Að barmi þjer dauðþreyttu höfðinu halla
— Í hyldjúpa sælunnar arma þjer falla!
Nú fáum við loksins að faðmast og njótast.
Jeg finn hvernig blóðið í æðum þjer rótast,
—99—