Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/105

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Er kvöldsvalinn strýkur um kinnin’ á mjer
Og kófrjóður geng jeg við hliðin’ á þjer.
Þó höndin þín titri, að henn’ er mjer styrkur,
Því hjarta þitt logar svo bjart verður myrkur.
Alt fánýtt og andstætt er flúið á brott —
Nú finn jeg að lífið er gott!

*⁠*⁠*


III.

Hnigin er sólin að sævi,
Svifin er aldan að strönd.
Dagsins er útrunnin æfi,
Alkyrrð um himin og lönd.
  Kvöldsvali ljúfur og lipur
  Mjer leikur um föla kinn.
  Var þetta síðasti svipur?
  Hvert sveif ’ann? — Í himininn inn?

Alt, sem að þreytt er og þjakað,
Þægindum nærist og fró.
Alt, sem að ei getur vakað,
Alsvæfis nýtur í ró.
  Kvöldsvali ljúfur og lipur
  Leikur um huga minn.
  Var þetta síðasti svipur
  Að svífa í himininn inn?

—100—