Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/107

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

TÓNSKÁLDIÐ.


Á alheimsins tungu þín list er þjer lögð,
Svo ljúf, en svo fögur og há;
Svo blíð, eins og móðirin barnið sitt við,
Svo bljúg ,eins og döggþrungið strá;
Svo göfug og helg, eins og Gyðj’ eða Ás,
En gjörráð og ströng eins og Þór.
Svo veik eins og barnslíf, og völt eins og knör,
Þó voldug og mikil og stór.

Á tónanna himni er hásýnt og bjart;
Þitt hásæti, kóngur, er þar!
Með öllu því fegursta áttu þar völd,
Sem er, eða verður og var.
Því hyldýpi anda þíns bylgjuna bar,
Sem brúaði himin við lönd.
Sú hljómþunga alda, svo ómþýð og klökk,
Mun ymja við tímanna strönd.
1911.

—102—