Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/108

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

BJÖRK.


Mig langar altaf, ljúfa, fagra björk,
Að lifa frjáls, í skuggum greina þinna;
AÐ rista nafn mitt á þinn bleika börk,
Og barna gullin, löngu tínd, að finna.

Í eyðimörk svo himin-tignar-há
Á hærri leið þú bendir sjónum mínum;
Ef vær’ ’eg þröstur, víst jeg mundi þá
Mjer velja sæt’i á efstu greinum þínum.

Og allan daginn eiga konungsstól
Þar uppi sem að fuglar himins búa;
Og altaf snúa augum móti sól,
Og engu nema sannleikanum trúa.

Og þegar foldu sígur svefn á brá,
Og sorgir lífsins rís’ í huga minum,
Ef vær’ eg þröstur vaka mund’ eg þá
Og vagga mjer í neðstu greinum þínum.

—103—