Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/109

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Og leggjast undir laufatjöldin þín
Í ljúfum blæ, er frjódögg skærri grætur;
Og syngja hjá þjer sumar ljóðin mín:
Um sólskins dag’a og skuggalausar nætur.

En að því loknu líta morgun sól
Með ljósatungum rauðum sleikja dalinn;
Og líf og gleði fylla byggð og ból
Með blessun, inní hreys’i og konungssalinn.

Og horf’ á lækinn líða hratt, en mjúkt
Í ljóss og djúpsins arma fallast láta;
Og lífið, bæði ungt og öfundsjúkt,
Á unaðsstundu feginstárum gráta.

Og hvernig áin, bæði breið og lygn,
Og blærinn, sem að hafa nóg að gera,
Af djúpri lotning lúta þinni tign
Og lauf þín græn um hrjósturlöndin bera.

Og alla fugla ljetta ljúfum blund
Og lim þitt sveigj’a í tónabylgjum sínum,
Og allan heiminn fylla friðar stund,
Af fjarsta tind, að hjartarótum mínum.


*⁠*⁠*


—104—