Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/11

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Og verði þjer reikað til haganna heim
— Um hlíðarnar mínar og lundinn —
Þá heilsa með bróðurhug berlendum þeim,
Og best er að eigir þú fundinn
Ef felst þar í sinunni fölvalaus rós —
Í frostunum ylur, í rökkrunum ljós.

Því skjálfhentur þó jeg við skriftina sje
Í skímunni’ af blaktandi ljósum,
Og sitji nú lotinn, með hörpuna’ á hnje
Við hrúgu af bliknuðum rósum,
Þá veit jeg þeir finna, sem eignast minn óð,
Að ungur jeg var, er jeg kvað þessi ljóð.

❦