Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/111

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

VOR.


Nú laugar sólbað lög og strönd,
Og lífgar alt hið veika’ og mætti þrotið;
Nú knýtast aftur öll þau bönd,
Sem ár og stríð og sorgir hafa brotið.
Nú rís úr moldu reyr og eik
Og rós á hverjum þyrnistöngli sprettur.
Nú glæðist aftur vonin veik,
Er vordögginni laugast sjerhver blettur.
Því hvar sem sól á sumardegi skín,
Og sóley gullin þekur hlíð og eyri,
Þar talar lífsins ljúfa rödd til þín:
Að lifa — gleðjast, njóta — verða meiri.

Nú syngja þrestir ljóðin löng
Um lífið frjálst í viltum skógar-geimi;
Nú minnir alt á meiri söng
Og meira líf, í virkileikans heimi.
Nú hvíslar báran hægum óm

—106—