Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/112

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

Og hafsins kveðju flytur jarðar búum.
Nú kveða lækir ljettum róm
Um lífið — þetta eina, sem við trúum.
Því hvar sem sól á sumardegi skín
Og sigur unninn yfir köldum vetri,
Þar talar lífsins ljúfa rödd til þín:
Að lifa — gleðjast, njóta — verða betri.

Nú hýrnar loksins hjartað kalt
Og hatrið dvínar, grimmdarverkum fækkar;
Nú ríkir líf, sem elskar alt,
Og einstaklingsins verkahringur stækkar.
Nú eykur sjerhvað andans hag
Og altaf ráðast gátur lfsins betur;
Nú senn mun líta sumardag —
Þá sólar-öld, sem fylgir enginn vetur.
Því hvar sem sól á sumardegi skín,
Og sannleikanum búinn griðastaður,
Þar hrópar lífsins ljúfa rödd til þín:
Að lifa — gleðjast, njóta — verða maður.
1912.


—107—