Þessi síða hefur verið prófarkalesin
SKÓGARDÍSIN.
Jeg ligg undir laufguðum krónum
Í lundinum, skógar-dís hjá;
Og leik mjer að ljúfustu tónum,
Sem lágróma harpan mín á.
Í lundinum, skógar-dís hjá;
Og leik mjer að ljúfustu tónum,
Sem lágróma harpan mín á.
Hún leggur sinn ljósroðna vanga
Við litþrotna kinnin’ á mjer,
Og reynir að láta mig langa
Að lifa og gleðjast með sjer.
Við litþrotna kinnin’ á mjer,
Og reynir að láta mig langa
Að lifa og gleðjast með sjer.
Hún þenur sitt brjóst mjer að barmi
Svo bjart, en þó logandi heitt;
Hún vefur mig alsælis armi,
Svo óttast jeg get ekki neitt.
Svo bjart, en þó logandi heitt;
Hún vefur mig alsælis armi,
Svo óttast jeg get ekki neitt.
Hún grætur mér glódaggar tárum
Og greiðir úr bylgjunum hár.
Hún dregur mjer sviðann úr sárum
Og segir mjer hamingju spár.
Og greiðir úr bylgjunum hár.
Hún dregur mjer sviðann úr sárum
Og segir mjer hamingju spár.
—108—