Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/114

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Hún ber mig um kletta og klungur,
Og kjassar mit önuga skap,
Svo mjer finnst jeg enn vera ungur
Og endurbætt daganna tap.

Hún sýnir mjer sólroðnar brautir,
Er sveygjast um ónumin lönd;
Hún leggur mjer líkn fyrir þrautir
Og leysir af sál minni bönd.

Hún segir mjer söngfugla kliðinn,
Er suðar fram lækurinn tær;
Hún færir mjer ljósið og friðinn
Og flytur mig himninum nær.

Hún bendir til fjallanna bláu;
Af blænum hún gefur mjer teig.
Hún brosir í blómunum smáu
Og bindur að enni mjer sveig.

Hún leyfir ei sólunni að síga
En sýnir mjer kvöldroðans tjöld,
Og ljósdöggvar lætur hún hníga
Á líf mitt, hvert einasta kvöld.
1912.


—109—