Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/115

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

VINSAMLEG TILMÆLI.


Jeg veit — er jeg dey — svo að verði jeg grátinn,
Þar verðurðu eflaust til taks.
En ætlirðu blómsveig að leggj’ á mig látinn
— Þá láttu mig fá hann strax.

Og mig, eins og aðra, sem afbragðsmenn deyja,
Í annála skrásetur þú;
Og hrós um mig ætlarðu sjálfsagt að segja,
En — segðu það heldur nú.

Og vilji menn þökk mínum verðleikum sýna,
Þá verður það efalaust þú,
Sem sjóð lætur stofna í minningu mína,
En — mjer kæm’ann betur nú.

Og mannúðar duluna þekki jeg þína,
Sem þenurðu dánum í hag.
En ætlirð’ að breið’ yfir brestina mína,
Þá breidd’ yfir þá í dag.
1912.

—110—