Þessi síða hefur verið prófarkalesin
SKIPBROT.
Breitt og djúpt var hafið, en báturinn var smár,
Sem borið hafði farmanninn úr landi;
Og margan hreppt’ ’ann storminn, um öll hin liðnu ár,
Þó altaf hefð’ ’ann getað varist strandi.
Og sú mun flestra reynsla, er bárust um á bárum,
Þó blóðið ekki sjáist, sem rann úr þeirra sárum.

Því ungur hafð’ ’ann verið, er fyrst hann steig á fjöl,
Og farmannslundin bátnum sínum treysti.
Hve gaman væri öldurnar að kljúfa með þeim kjöl,
Og kveða svo um afreksverk og hreysti.
En láta gegnum stormsjóa litla bátinn ganga,
Og löðrið, eins og meyjarhönd, strjúka sjer um vanga.

—111—