Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/117

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Nú var hann orðinn þreyttur, og langaði til til lands,
Að lifa það sem eftir væri’ í næði.
Og ströndin var svo fögur í hugarsjónum hans—
Um hana var svo ljúft að syngja kvæði,
Því hann og æðsta hugsjónin hlutu þar að mætast,
Og hjartað geymdi vonir, sem áttu þar að rætast.

Því lengur sem hann horfði, því lygnari varð sær,
Og loksins var hann orðinn kyrr og sljettur.
Í hafsins spegli roðnaði nú himin-dísin skær,
Og handan það var land, og sólskins blettur.
Þar fuglar sát’ á trjánum og sung’u um kvöldið bjarta.
Og sólarljósið brotnaði svo milt á farmanns hjarta.

Hann hafði verið sjúkur, nú fann hann loksins frið,
Því farmanninum land er öllu kærra.
Þó seglin ekki stæðu, þá sat hann stýrið við,
Og sýndist landið verða nær og hærra.
Því gaman er á sænum, er sólin skín á bárum,
Þó seglin ekki standi, ef þróttur fylgir árum.

—112—