Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Og seglin vafð’ ’ann saman, af sveif hann leysti ól
Og sjómannshöndin greip á traustum árum.
Nú hert’ ’ann brátt á skriðinu, svo hrönnin bátinn fól
Og hafflöturinn þaktist bláum gárum.
Því ljettur er þeim róðurinn, sem land að stafni hefur,
Og lengri sem er þrautin, hún stærri sigur gefur.

Þá stóð hann upp í bátnum, og lagði árar inn.
— Nú átt’ ’ann ekki fleiri tog að róa!
Hann vissi hvað það var, að leit’ í lægi inn,
Og landróðurinn taka milli sjóa.
En — hjer var engin lending, og ekkert nema sker,
Sem öldu hverja brýtur, er hafið þangað ber.

Því særinn hafði þvegið burt sólarlandið hans.
— Hann sá það hafði verið — aðeins hylling.
Hann vissi það var síðasta von að ná til lands.
— Von, sem dæji, og næði aldrei fylling!
Og farmannshjartað titrað’ en tár í augum stóðu,
Og tilkenningar neistar í vonarlogum glóðu.

—113—
Fölvar Rósir VIII.