Þessi síða hefur verið prófarkalesin
ÍSLAND.
Legðu nú, drottinn, ljóð á tungu mína.
Ljúktu nú opnu hverju frónsku hjarta.
Láttu nú sól á landið kalda skína.
Leiddu hvern Íslending um vegu bjarta.
Særinn er úfinn, en svipvindar skýbólstrum feykja.
Sæbratta ströndina brimtungur mjallhvítar sleikja.
Stormbarin nes skýla djúpskornum víkum og vogum;
Vella þar boðar á skerjum, með orgum og sogum.

Kalt er í sveitum og sólþrot um grundir og hjalla.
Situr á gnýpunni Valur og horfir til fjalla,
Þar sem að sauðaval krafsar um þeyslegna rinda
Í þráviðris-dal, millum brattra og snæþaktra tinda.

Rýkur upp mjallfok, en rökkvar um hóla og dali;
Ráfar á hjarninu þreyttur og klæðlítill smali.
Bragandi norðurljós lýsa’ ’onum hrímstorknar leiðir,
En lífvana gilbúinn svellhjúp á fjölgresið breiðir.

—115—