Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Stórviðris byljir, er standa’ allan guðslangan daginn,
Steypa úr snjódufti múr kringum vistþrota bæinn.
Háttar þar fólkið í rúm undir svignuðum súðum,
Er syrtir að nótt fyrir hrímuðum baðstofu-rúðum.

Svo kemur vorið, og dagarnir lýsast og lengjast,
Og lengst inní afkima vermandi sólgeislar þrengjast,
Himininn blánar, en haföldur klökkar og þýðar
Hvarfla til lands, þar sem blasa við grænkandi hlíðar.

Söngfuglar kvaka, en sóleyjar brosa í túnum.
Suðandi smálækir steypast af dalanna brúnum.
Spenna þar kjarr-viðir greipar, um sprungur og hjalla,
En speglast í Svana-tjörn ásjónur dimmblárra fjalla.

Bæla sig jórtrandi hjarðir um hóla og dali,
Hoppar í kringum þær léttfættur, syngjandi smali.
Glóandi dagg-perlur glitra um laufþakinn völlinn.
En guðvefjar skykkjuna kvöldroðinn breiðir á fjöllin.

—116—