Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Laxar og silungar leika í straumum og hyljum.
Ljóð syngja fossar, en berglindir ólga í giljum.
Troðjúgra lambærnar standa við stekkinn og jarma,
En stór-árnar þögular fló’ útá grösuga barma.

Lág-þýðir, titrandi lífhljómar, hvervetna óma.
Lútir hvert strá, hjúpað tárfögrum eilífðar blóma.
Af frjó-hjelu dögg verða Reyrinn og Einirinn rakir,
En rauð einsog eldur, á hafinu náttsólin vakir.

Þannig er Ísland. Hver gæti því gleymt þó ’ann vildi?
Svo grimmúðugt, hrjóstrugt, en sveipað í fegurð og mildi!
Landið, sem veður í hafíss og stórelda streymi —
Stórskorna landið, sem fegurst er allra í heimi.

Landið, sem Garðar og Ingólf af hafinu hylti.
Hamingju landið, sem morgunsól frelsisins gylti!
Landið, sem fyrst skráði „Lýðstjórn“ í menningar sögu.
Landið, sem afreksverk geymir í þungskildri bögu.

—117—