Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Þar áttu feðurnir frægðar og hamingju daga;
Fræjum til blessunar stráðu þar Iðun og Saga,
Ljúfmenskan, hreystin og harkan og þrekið og mildin,
Háttprýðin, stórlyndið, vizkan og tryggðin og snildin.

Gott er að kalla til arfs úr þeim ótæmda sjóði:
Íslenzkum drengskap og norrænu víkinga blóði;
Mest er þó sæmdin, að sýna í orði og verki,
Sonur hvers lands sem þú ert, að þú berir þess merki.

Og vittu það, barn, sem að hefur á landinu lifað
Og lesið þær rúnir, sem tímarnir hafa þar skrifað,
Að föðurlands-ást er þar letruð í sjerhverri línu;
Hún lifir þó fegurst í ókveðna ljóðinu þínu!

***
Með glóandi sólskin á sjerhverjum hnjúki og tindi,
Sumar í loftin’u og smáblóma angan í vindi:
Að alveldis barminum Fjallkonan höfðinu hallar
Og heim í sitt móðurskaut fjarlægu börnin sín kallar.
1913.
—118—