Þessi síða hefur verið prófarkalesin
SONAR TORREK.
Sigurjón Kristinn, sonur höf.
[Dó af slysi fjögra ára gamall 6. Október 1908.]
I.
Einmana sit jeg, því alt er mist;
Andvarinn þýtur um beran kvist,
Fölnuðu laufin fjúka.
Hnígin er sólin að sævar brún,
Síðustu geislana teygir hún
Á fjöllin og hæstu hnjúka.
Andvarinn þýtur um beran kvist,
Fölnuðu laufin fjúka.
Hnígin er sólin að sævar brún,
Síðustu geislana teygir hún
Á fjöllin og hæstu hnjúka.
Dagsbirtan þverrar og dregst að húm,
Dularfull ró yfir tíma’ og rúm,
— Grátkyrrð — sem náttúran gefur.
Blik senda stjörnurnar blásölum frá,
Blaktandi drúpir í lautinni strá,
Báran á sæfleti sefur.
Dularfull ró yfir tíma’ og rúm,
— Grátkyrrð — sem náttúran gefur.
Blik senda stjörnurnar blásölum frá,
Blaktandi drúpir í lautinni strá,
Báran á sæfleti sefur.
—119—