Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/125

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Hjer er jeg glaumi heimsins fjær,
Hjer er jeg Guði sjálfum nær;
Nú get jeg tárast í næði.
Hjer er svo ágætt að hvíla sig —
Hjer er ekkert, sem truflar mig.
Nú vil jeg kveða kvæði.

II.

Fagur er morgun;
  Um fjöll og um dali
Sólgeislar reika
  Og syngjandi smali,
    — Um döggvota dali.

Lækirnir kveða
  Ljóðin í hlíðum.
Ómurinn berst mjer
  Í öldum svo þýðum.
    — Blæþytnum blíðum.

Vaggar sjer aldan
  Um voga og sundin;
Titringinn finn jeg
  Því gljúp er nú grundin.
    — Fögur er stundin.

—120—