Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/126

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Blóm heilsar blómi.
  Og brekkunni þakkar —
Og dögginni — næring;
  Til dagsins það hlakkar.
    — Hlakkandi þakkar.

Hreiður sjer byggja
  Hrafninn og Lóan;
Kjósa að heimili
  Klettinn og móann.
    — Lyng-gróinn móann.

Fer nú til veiða
  Fuglinn úr bjargi;
Alt fyllist loftið
  Af urgi og gargi.
    — Iðar í bjargi.

Lömbin frá stekknum
  Stökkva með ánum;
Svo þegar stanza þær,
  Sjúga á hnjánum.
    — Lömbin með ánum.

Blær fer með sólunni;
  Beygir hann stráin.

—121—