Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/128

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

  Kauphús fyllast
    — Hugir hyllast.

Beiðist beininga úti
  Boginn halur;
Dynur fyrir dans
  Drykkju salur.
    — Dýr er hver dalur.

Seilist mögur hönd,
  Starir sjónlaust auga;
Fyrir smápening
  Feginstár lauga
    Ljósþrotið auga.

Ekur yfir torg
  Auðkýfingur;
Brosir blómleg mey,
  Bogna nettir fingur.
    — Herðir að hringur.

Troða blautan stíg
  Berir fætur,
Vill blaðadrengur
  Bíða rætur
    Glaður, en grætur.

—123—