Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Lofar skini skúr,
Finna skýli stráin.
Faðmar móðurást
Fölann náinn.
— Drenginn sinn dáinn.
Finna skýli stráin.
Faðmar móðurást
Fölann náinn.
— Drenginn sinn dáinn.
III.
Það rothögg kom eins og reiðarslag,
Sem rænd’ okkur lífi báða,
Og sendi um hádegi sólarlag,
— Í sorg verður fátt til ráða!
Og engan jeg veit, er æsk’ að sjá
Þá orustu framar háða.
Sem rænd’ okkur lífi báða,
Og sendi um hádegi sólarlag,
— Í sorg verður fátt til ráða!
Og engan jeg veit, er æsk’ að sjá
Þá orustu framar háða.
Jeg man það enn, hvað var sárt að sjá
Þig sveipaðan dánar hjúpi.
En samt veit jeg harma, sárr’ en þá,
Er svella í grafar djúpi.
— Jeg lít ekki niður, að leita þín.
Við legstaðinn þó jeg krjúpi.
Þig sveipaðan dánar hjúpi.
En samt veit jeg harma, sárr’ en þá,
Er svella í grafar djúpi.
— Jeg lít ekki niður, að leita þín.
Við legstaðinn þó jeg krjúpi.
Þó ásýnd fölnað’ og augað þitt
Við atlögu dauðans brysti,
Þá hlýnaði við það hjarta mitt
Er hönd þína dán’ eg kysti.
Við atlögu dauðans brysti,
Þá hlýnaði við það hjarta mitt
Er hönd þína dán’ eg kysti.
—124—