Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/130

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

Jeg vissi þá ekki, jeg veit það nú
Það varst ekki þú, sem jeg misti.

Við dauðans atlögu drjúpa tár,
Ef dugur og skynsemd þrýtur;
En böli og sælu eyða ár,
Ef annars ei meira nýtur,
Því augnablik verða eilífð jöfn
Og ölduna skerið brýtur.

Þó bani þinn hafi byrgt mjer sól
Mun breytast sá stundar hagur,
Því bakvið skýið, sem skinið fól,
Er skærari og meiri dagur.
Þar eigum við samtíð, elskan mín!
Sá eilífðar heimur er fagur.

IV.

Jeg gríp í þann strenginn, sem sterkastur er,
Nú styðst jeg við aflið, sem ríkir í mjer,
Þann kraft, sem er í öll’ og yfir.
Nú heyri jeg lífið, í hjartanu slá.
Sje himininn lyfta sjer jörðunni frá.
Nú sje jeg að sonur minn lifir.

—126—