Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/131

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Nú veit jeg að lífið er guðborin gjöf
Og grátandi móðir við sonarins gröf
Er sólroð’ af sigruðum hörmum.
Nú sje jeg hvert ágæti elskan að er,
Og alla þá fegurð og tign sem hún ber,
Með deyjandi ástvin í örmum.

Nú birtast mjer sýnir frá Sögunnar öld:
Jeg sje hvernig alt hefur morgun og kvöld,
Sinn hádag og heldimmar nætur.
Sje kóngsríki fæðast, með keisara stól,
Og kristnina örugga halda þar jól,
Er svívirta sakleysið grætur.

Nú sje jeg hið vopnaða víkinga lið,
Er vörð heldur enn um hinn blóðuga frið,
Sem keyptur er kaunum og tárum.
Nú veit jeg hvað konungstign vegsamleg er,
Nú veit jeg hvað ágætur plástur hún er
Á sviðann í hermanna sárum.

Nú veit jeg hvað læknað fær sviðann í sál.
Jeg sje þau í rekkjunni, Bergþóru’ og Njál
Og reykinn frá rústunum stíga.
Nú birtist mjer Gunnar í síðasta sinn

—126—