Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Er sveigði hann bogann, en þekjan fjell inn.
Sje hetjuna vinþrota hníga.
Hvað sagði jeg! — Þetta er sjónhverfing ein.
Jeg sje að eins grafreit, með steini við stein
Og minningar merkjunum háu.
— En sveigar og legsteinar segja’ ekki þar
Sannara um, hver hinn framliðni var,
En tárin á leiðunum lágu.
Jeg sje að eins grafreit, með steini við stein
Og minningar merkjunum háu.
— En sveigar og legsteinar segja’ ekki þar
Sannara um, hver hinn framliðni var,
En tárin á leiðunum lágu.
V.
Aldrei verður eðli lífsins breytt —
Auðn og dauði hagga því ei neitt.
Líf, sem vakið einu sinni er,
Er og verður, — þar, ef ekki hjer.
Auðn og dauði hagga því ei neitt.
Líf, sem vakið einu sinni er,
Er og verður, — þar, ef ekki hjer.
Líttu, móðir, litla drenginn þinn
Leika sjer um stirndan himininn.
Senda kveðju’ í sólar yl til þín:
Sjáðu, mamma, barnagullin mín!
Leika sjer um stirndan himininn.
Senda kveðju’ í sólar yl til þín:
Sjáðu, mamma, barnagullin mín!
Þegar harmar lífsins leita á,
Lítil hendi strýkur tár af brá.
Og engilrómur hjalar þýtt við þig:
“Þykir nú pabba mínum vænt um mig.”
Lítil hendi strýkur tár af brá.
Og engilrómur hjalar þýtt við þig:
“Þykir nú pabba mínum vænt um mig.”
—127—