Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/133

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

VI.

Einmana, snauður—því alt er mist.
Andvarinn þýtur um beran kvist,
Fölnuðu laufin fjúka.
Sólin er hnigin að sævar brún,
Síðustu geislana teygir hún
Á fjöllin og hæztu hnjúka.

Dagsbirtan þverrar en dregst að húm;
Dimmir nú mjög um tíma og rúm,
Og margt er sem að mjer amar.
— — Náttkul að hjartanu næðir inn.
⁠—⁠—⁠—⁠—⁠—⁠—⁠—
⁠—⁠—⁠—⁠—⁠—⁠—⁠—
Nú hef jeg kvatt þig, sonur minn.

*⁠*⁠*

Nú yrki jeg aldrei framar.
1913.


—128—