Þessi síða hefur verið prófarkalesin
HEKLA.
Hve fagurt er um Frón að líta,
Á fjalla tind sem ber við ský —
Á Heklu-faldinn fanna-hvíta!
— Því fögur sjón er ávalt ný.
Þú hefur svip af himin gyðjum.
Já, Hekla, stór er saga þín!
Þú heldur mjer í helgum viðjum.
Jeg held þú verðir konan mín!
Á fjalla tind sem ber við ský —
Á Heklu-faldinn fanna-hvíta!
— Því fögur sjón er ávalt ný.
Þú hefur svip af himin gyðjum.
Já, Hekla, stór er saga þín!
Þú heldur mjer í helgum viðjum.
Jeg held þú verðir konan mín!
Hve sárt mjer finnst, ef sje jeg ekki
Á silfurhvíta kollinn þinn;
Því einga slíka enn jeg þekki
Svo undur fagra meyjar kinn.
Þín fegurð aldrei fölnað getur
Í faðmalögum klaka lands;
Um sumar jafnt og svalann vetur
Þú sveipar ennið hærukrans.
Á silfurhvíta kollinn þinn;
Því einga slíka enn jeg þekki
Svo undur fagra meyjar kinn.
Þín fegurð aldrei fölnað getur
Í faðmalögum klaka lands;
Um sumar jafnt og svalann vetur
Þú sveipar ennið hærukrans.
—9—