Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/15

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Þitt skarlat er af skorpnum hraunum—
Úr skógar reinum silkibönd;
En undir hlaðin ertu kaunum,
Sem engin mannleg græðir hönd;
Því sár þín ógnar-eldi blæða,
Er eins vel bræðir stein sem mjöll;
En kristals-tár af augum æða,
Sem iða niður Rangárvöll.

Þú aldna drottning Íslands fjalla
— Í árdags roða fegri sól —
Er lokkar þínir ljósir falla
Um logum-ofinn steypu-kjól;
Og þegar röðull sezt að sænum
Og sveipar gulli faldinn þinn —
Þú brosir hlýtt í himinblænum
Og heillar til þín anda minn.

Á meðan skíð í arni funar,
Og árdags sólir geislum strá;
Á meðan foss af bergi bunar
Og byltast lækir fram að sjá;
Á meðan lífið lopti nærist,
Og lýsir máni snjóvgan tind;
Á meðan önd í brjósti bærist,
Jeg ber í hjarta þína mynd.
1892.

—10—