Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/16

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

HEILABROT.


Ó, þú blessaða æskunnar brosandi stund!
Eins og bunandi lækur í skrúðrænum lund,
Er þín óðfluga rás, gegnum unaðar heim —
Gegnum indælar vonir í töfranna geim.
Eins og titrandi ljós, sem að tendrast á ný,
Eins og tindrandi stjarna, sem blikar við ský;
  Því að lífið er glys,
  Eins og leiptrandi blys,
  Sem að logar og slokknar—í vindi—á mis.

Ó, þú svellandi harmanna titrandi tár,
Sem að talar frá hjartanu’ um blæðandi sár
Og um sárustu minning frá saknaðar-stund;
Eins og svíðandi verkir í banvænni und
Er þitt logandi eldstrauma ólgandi flóð,
Sem að aftrábak rennur um kulnaða glóð;
  Því að lífið er stríð

—11—