Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/18

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

SKILNAÐUR.


Hve sviplega hverful er söngfugla raust—
Hve sorgum opt gleðin er búin!
Því kólnað er sumar og komið er haust,
Og kætin úr brjóstinu flúin.

Jeg man þó jeg lifði svo ljómandi vor
Og leit fram á sólbjarta daga;
Þá hljóp jeg sem unglamb hvert einasta spor
Og ekkert þá var mjer til baga.

Jeg undi svo barnslegur upp við þann barm
— Svo óttalaus, saklaus og glaður;
Jeg vafðist svo hlýlega af þínum arm,
Jeg engill varð fremur en maður.

Því ast mín er brennandi, eilíf og hrein.
Jeg átti svo tápmikið hjarta
Að engin gat sigrað það, utan þú ein
— Augað þitt — sálin þín bjarta.

—13—