Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/19

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin
En nú er það sigrað; já sigrað um of.
Þó sorginni muni jeg leyna
Hún geymist til dauðans. En guði sje lof,
Að gefa mjer ástina hreina.
Því aptur—á kvöldin—þá augun jeg læt
Og árla, þá rís jeg af beði,
Þá hvarfla jeg til þín með hugann, og græt,
Og hef í því svölun og gleði.

Svo þó við nú kveðjumst í síðasta sinn
Og sjáumst ei framar í heimi,
Og hvarflandi stundum sje hugurinn minn,
Jeg held að jeg aldrei þjer gleymi.

Jeg hata þig ekki. Jeg elska þig enn!
Þó uppspretta táranna þorni
Þjer ást mína geym’eg. Við sjáustum senn —
Við sjáumst á eilífðar morgni.
1892


—14—