Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/21

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

LEIÐSLA.


Í fjalla sölum, fjarri lífsins glaumi,
Er furðulega sælt að hafa blund,
Og svífa frjáls í sætum vona draumi
Er sæluríkt, um þögla nætur stund,
Og líta yfir líf og rúm og tíma,
Og liðna öld, og hennar Sögu hrós;
Og daga þá, sem dulins hylur gríma, —
Dauðann, gröf og æðra morgunljós.

Jeg sá það fyrst, jeg sat í þungum hörmum
Við Ceres brjóst í hlýjum morgunvind;
Jeg var sem barn, á blíðrar móður örmum,
Sem báru mig á háan fjalla tind.
Og þaðan sá jeg himin, jörð og hafið,
Og hulda veröld, gegnum þokuský;
En á það fjall var gullnum rúnum grafið:
Ó, gleðstu, maður, drottni þínum í.

—16—