Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Jeg leit nú yfir liðnar æfistundir
Og leiðina, á horfnri æsku tið;
Jeg sá hún lá um liljum stráðar grundir,
Og líka gegnum hörmungar og stríð.
Jeg sá jeg hafði ungur illa látið,
En einatt lifað fagrann sólskins dag;
Jeg sá jeg hafði setið líka og grátið
Og sviptur vinum kveðið harma lag.
Og leiðina, á horfnri æsku tið;
Jeg sá hún lá um liljum stráðar grundir,
Og líka gegnum hörmungar og stríð.
Jeg sá jeg hafði ungur illa látið,
En einatt lifað fagrann sólskins dag;
Jeg sá jeg hafði setið líka og grátið
Og sviptur vinum kveðið harma lag.
Jeg sá þar framtíð setta dökkum rúnum,
Er sólin aldrei vildi gefa skin,
Og hála leið í bröttum fjalla brúnum
Er beygði fjarri hverjum æskuvin.
Jeg sá þar elli, sveipta gráum hárum,
Er sviðu ótal gömul vöggu mein,
Og síðast leiði, laugað fáum tárum,
Með lágum rósum fyrir bautastein.
Er sólin aldrei vildi gefa skin,
Og hála leið í bröttum fjalla brúnum
Er beygði fjarri hverjum æskuvin.
Jeg sá þar elli, sveipta gráum hárum,
Er sviðu ótal gömul vöggu mein,
Og síðast leiði, laugað fáum tárum,
Með lágum rósum fyrir bautastein.
Jeg vildi kveða, en varð ei neitt að orði,
Jeg vildi syngja, en kunni ekkert lag.
Jeg þögull stóð, og hauðrið yfir horfði
Og hetjualdar syrgði liðinn dag.
Jeg vildi gráta, en gat þó ekki tárast;
Mjer gramdist lífsins heimska, spilling, tál;
En það var sem mjer þókti allra sárast,
Að þurfa lífs- í botn að drekka- skál.
Jeg vildi syngja, en kunni ekkert lag.
Jeg þögull stóð, og hauðrið yfir horfði
Og hetjualdar syrgði liðinn dag.
Jeg vildi gráta, en gat þó ekki tárast;
Mjer gramdist lífsins heimska, spilling, tál;
En það var sem mjer þókti allra sárast,
Að þurfa lífs- í botn að drekka- skál.
—17—
Fölvar Rósir. II.