Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/23

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Mjer fanst jeg geta flogið yfir heiminn,
Að flýja þetta voðalega stríð,
Og sveimað eins og andi útí geiminn
Og ekki þurfa til þess langa tíð.
En Ceres var þá svifin burtu frá mjer.
Jeg sat á klett og horfði niðrá storð;
En skuggann hafð’ún skilið eftir hjá mjer.
Jeg skelfdist þá og mælti þessi orð:

Þú fagra dís, sem fluttir mig í draumi
Um fjöll og dali, engi, voga’ og sund.
Mjer búðu far með ströngum lækjar straumi
Af stalli þessum, niðrá sljetta grund.
Og þar, sem eyrin útvið bakkann háa
Í odda skerst, er lækur mætir sæ,
En langt í fjarlægð fjallið gnæfir háa;
Þar feldu sandi einstæðingsins hræ.
1893


—18—