Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/24

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

AFMÆLISKVEDJA.
Til frú Mörtu Jónsdóttir á Seljalandi.

[þegar hún var 25 ára. Á gamlársdag 1893.]


“Nú ár hafa liðið í aldanna skaut”
  Og áranna fjöldi er hulinn,
En ýms er þó minning á æfinnar braut—
Frá umliðna tímanum — gleði og þraut,
  Sem ei verður afmáð nje dulin.

Já, margs er nú, Marta, að minnast í kvöld
  Og mikil og háleit er stundin.
Þú fullkomnað hefur nú fjórðung af öld;
Sem fæst ei til baka, því daganna fjöld
  Er talin og takmörkum bundin.

Þú horfir til baka, en horfið er alt
  Með hverfandi tímanna straumi.
Þú lítur til baka, en liðið er alt —
Þig langar það kaupa, en það er ei falt;
  Þú lítur það líkt og í draumi.

—19—