Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/25

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin
En eptir er tími, því eptir er líf,
  Sem örlaga rúnirnar þýðir.
Hann færir þjer gleði? Hann færir þjer kíf?
Hann færir þjer dauða?—Hann færir þjer líf?
  — Hann færir þjer friðland um síðir.

Vjer óskum þjer blessunar, ókomin ár
  Vjer óskum þjer hamingju, Marta!
Vjer óskum þú eigir mörg ólifuð ár;
Vjer óskum þjer samhuga: Gleðilegt ár.
  Vjer árnum þjer heilla af hjarta!
1893


—20—