Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/26

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

GRAFSKRIFT.


Yfir hann, sem liggur hjerna látinn,
Langar fáa bautastein að setja;
Eptir þann, sem ekki verður grátinn,
Enginn þykist minnning kveðið geta.

Þetta er þó bein af okkar beinum.
— Brekkan erfið hjálparlausum kröptum.
Hjerna fleygði ’ann mæðu sinni og meinum,
Margnagaður rógberandi kjöptum.

Hjerna tók hann hvíld á miðju skeiði —
Hjerna var hann loks að kröptum þrotinn —
Hjerna hvílir hann und lágu leiði.
Lífsins hlekkur nú er sundur brotinn.

Aldrei framar hörpu strengi hrærir
Hróðmæringur nú, um daga langa;
Aðeins nárinn bleikar varir bærir —
Biður alla, sem að framhjá ganga:

—21—