Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/27

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Komið hjer og kastið til mín stöku—
Kveðið við mig eina drauga rímu;
Mjer er sama í svefni bæði’ og vöku —
Sjaldan hef jeg skorast undan glímu.

Komið hjer og sjáið mínar syndir.
— Sjálfur hef jeg aldrei verið feiminn. —
Tíminn hefur málað þessar myndir.
Margur var á annars kosti gleyminn.

Komið hingað, allir Adams synir,
Eigið hrafnaþing á leiði mínu!
Hvort sem fjendur vitja’ ’ans eða vinir,
Vakir nárinn enn í bóli sínu.
1894.


—22—