Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/29

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin
Aldrei frægri sigur held’r enn nú;
Enginn hefir brugðið betri vigur
— Beittari — en kærleik, von og trú.

Íslandsþjóð, sem áður lágst í böndum
Odrykkjunnar — siðum spilta þjóð! —
Berstu djarft með frjálsum hetju höndum
Hafir þú í æðum nor-rænt blóð;
Fagna björtum frelsis morgunroða,
Fram til starfa; hljóma láttu nú:
Heill sje þeim, sem börnum mínum boða
Bindindið í kærleik, von og trú.

Íslands niðjar — Íslands dætur, synir
Íslands hjartna meginradda fjöld;
Íslands hetjur, Íslands frelsis vinir,
Allir biðjum samhuga í kvöld:
Voru frelsi fjendur aldrei bifi,
Fræin blómgist, þau er sáum nú;
Blessist, eflist, breiðist út og lifi
Bindindið í kærleik, von og trú.
1894.


—24—